Flokkarölt

Í fréttum sjónvarpsins 27. nóv. 2006  var sagt frá því að Kristinn H Gunnarsson alþingismaður sem hafnaði í þriðja sæti í prófkjöri Framsóknarmanna í NV-kjördæmi sé ekki mjög ánægður þessa dagana. Talið er að hann muni jafnvel ekki taka sætið, fara fremur í sérframboð eða í Frjálslynda flokkinn. Sama kvöld varð þessi vísa til, en birtist fyrst núna. Kristinn hefur nú ákveðið að ganga til liðs við Frjálslynda flokkinn og það verður þriðji flokkurinn sem hann styðurá sjö árum - Kristinn er því allt jafn hress og ferskur.  EL


Kristinn milli flokka fer,
fæti tyllir niður.
Ofursnilli eflaust ber,
enn um hylli biður.

Fleiri vísur komu af þessu brölti eða rölti alþingismannsins.

Í Kristni blundar göfugt gen,
gengur funda milli.
Frelsislundin fyllir senn,
frjálsa stundarhylli.    


Litla-Holtsferðin

Þetta var góður dagur. Við feðgarnir þrír sem búum á höfuðborgarsvæðinu drifum okkur í morgun austur í frístundahúsið. Lukum við að klæða neðan í loftið á skálanum og þar lauk enn einum áfanganum í byggingu hússins. Næst þarf rafvirkinn að klára rafmagnið; slökkvara, ljós og þess háttar verkefni. Þá verður aðeins eftir innandyra að setja upp innréttingar, gólfefni og hurðir. Veröndina á eftir að hanna og setja upp. Þegar öllu þessu verður lokið, þá verður kátt í kotinu.  EL

Kapparnir frá Reykjaskóla

Fyrir hart nær 40 árum útskrifuðust þessir kappar frá Reykjaskóla í Hrútafirði, ásamt bekkjarfélögum  sínum.  Þeir voru í körfuboltaliði skólans, en körfubolti var þá þegar orðin vinsæl íþróttgrein.  Kappar frá RskÍ þá daga þótti við hæfi að eignast skólapeysur með merki skólans eins og glöggt má sjá á myndinni.  Þetta þótti auka samheldni og samhug meðal bekkjarfélaganna.  Þessi mynd hefur hvergi birst áður, hreinlega legið í dvala.  En félagarnir Svanur, Hjálmur, Jón og Eggert eru enn í fullu fjöri en eitthvað hefur útlitið væntanlega breyst.  En hvað um það, þá ætla bekkjarfélagarnir fjörtíu að minnast fjörtíu ára afmælisins í vor.  Sú venja hefur skapast að hópurinn hefur hist á fimm ára fresti frá útskrift og alltaf hefur verið jafn gaman.  Þegar maður lítur yfir farinn veg, þá er þetta í raun alveg ótrúlegt.  Í minningunni var dvölin á Reykjaskóla skemmtileg, árin þrjú voru fljót að líða, enda höfðu menn ýmislegt fyrir stafni.  Þegar nám og leikur fer saman þá flýgur tíminn hratt.  EL


Heiti potturinn

sund

Í árslok skundaði ættleggurinn austur fyrir fjall og skellti á fundi í sundlauginni á Stokkseyri. Í heita pottinum var liðið ár gert upp og drög lögð að því næsta. Fundargerðin verður birt síðar á þessum vettvangi en mörg mál voru reifuð og mikill hugur í leggnum. Árið 2007 þykir sérleg lofandi og bíða mörg ögrandi verkefni leggsins; Oddný tekur sæti í Borgarstjórn og var það mál manna að tímabært sé að rödd ættleggsins hljómi þar, Margrét María er enn að glíma við móðurmálið og er það stórmál fyrir litla stúlku; árið getur ekki fært MN annað en gæfu eftir ósköpin sem dundu yfir á liðnu ári; hennar bíður gleði og grænir fingur. Yfir mæðrum hinna ungu drengja (Hjördísi og Lydiu) hvílir mikil dulúð og þeirra framtíð alsendis óráðin og svo má einnig segja um karllegginn. Yfir honum hvílir mikil leynd;  er skáldsaga í burðarliðnum? eða ljóðabók? hvað taka Brooklynfeðgar sér fyrir hendur? fleiri störf í LA? (gott að rödd leggsins hljómi þar líka) þó er næsta víst að Andri Luke þarf (ásamt Nóa sem var vant við látin og komst ekki á fundinn) að glíma við sama (móður)málið og Margrét María og á hann mikið verk fyrir höndm þar sem hann er tvítyngdur. Okkur skilst að Kári stóri, Tindur (komust ekki á fundinn sökum anna) og Kári Daníel ætli að sinna sérverkefnum eins og venjulega og var umræðu um þeirra þátttöku í störfum leggsins frestað til næsta fundar sem hefur ekki enn verið ákveðinn. Eggert er að skríða á eftirlaunaaldurinn á ,,næstu árum" samkvæmt hinni víðfrægu 95árareglu. Ríkir einnig mikil leynd yfir því og æsispennandi að fylgjast með - hvenær hættir EL að kenna? Er líf eftir kennslu?

Eftir vel heppnaðan fund var snæddur hádegisverður í Rauða húsinu á Eyrarbakka og síðan farið í gönguferð meðfram Atlantshafinu og verður að segjast eins og er að notalegra er nú að rölta eftir ströndum Miðjarðarhafs. En þetta var góður túr í alla staði.
Maja
Smellið á myndirnar til vinstri og njótið.


Börn að leik í snjónum

Snjór MMummm.... ég elska þennan snjó! 
Kári Daníel hefur myndað flugbraut í snjóinn með sporum sínumSnjór KD


Snjór, snjór, snjór og meiri snjór

Nú er eins gott að eiga góðar skóflur - snjóinn kyngir niður og höfum við átt góðar stundir út þ.e. við hjónin við snjómokstur og í gær bjuggum við Kári Daníel til snjóengla í garðinum við Sjafnargötu. Langt síðan englagerð hefur verið stunduð enda snjóleysa ríkt hér um slóðir lengi. M. María var mjög undrandi á þessum hvítu flygsum sem þyrluðust látlaust um loftið og reyndi hún í sífellu að góma þær. Um daginn auglýsti ég eftir myndum á síðunni minni og hreif það umsvífalaust (Langþráður); núna auglýsi ég aftur eftir myndum - í þetta skipti af börnunum að leik í snjónum.
Dreif mig í yoga á fimmtudaginn og síðan í gönguferð niður við sjó (við Ægisíðuna) í kompaníi með Ljósberum úr Ljósinu. Það gekk bara vel og er nú stefnt á slíkar líkamsfettur reglulega. Er með pínu harðsperrur eftir snjómoksturinn enda mokað dag eftir dag. Tengdadóttir mín í NY sendi mér þessa líka fínu skó í gær - hlýir enda loðfóðraðir og fisléttir; ég svíf um eins og álfamær. Og diskurinn góði með jólamyndunum kominn í hús og aldeilis gaman að endurupplifa the spirit of Christmas. Annars allt gott héðan og kannski sigla vísur inn á bloggið - hver veit.

Læt fljóta hér með heimasíðu Ljósins www.ljosid.org
og bloggið hennar Ástu Lovísu, það er bjart yfir henni núna http://www.123.is/crazyfroggy
Maja


Langþráður

Langþráður
Hinn sprellfjörugi saumaklúbbur Langþráður. Smellið á myndiina til að njóta.

Góðar fréttir

Við Agnes krabbameinslæknir gerum smá hlé á stefnumótum okkar, niðurstöður rannsóknanna í gær voru góðar og engar vísbendingar um að neitt slæmt sé að grassera. Við ætlum að hittast næst í apríl, á sama stað. Nú er bara að takast á við næsta skref og gleðjast með góðum.

Þegar horft er út um stofugluggann núna kl.17:20 blasir halastjarnan McNaught við sjónum okkar á suðvestur himni. Fögur sjón og veit örugglega á gott. Halastjarna er lítill þokukenndur hnöttur í sólkerfinu sem hefur um sig hjúp. Þegar hún kemur í grennd við sólu blæs sólvindurinn hjúpnum út í hala sem vísar alltaf frá sól.

En annars blasir árið 2007 við Austurbrúningum með fögrum fyrirheitum. Á föstudaginn hitti ég mínar góðu vinkonur í Langþráði og bíð eftir myndum úr partýinu frá Kristjönu, vonandi koma þær fljótlega? Þrettándakvöldinu eyddum við með Jóhönnu Rakel og Eggerti Aroni frá Fífuvöllum. Framundan eru bara góðir dagar held ég ....
Maja


Á nýju ári

Í dag fór ég í sneiðmyndatöku og blóðprufur og fæ niðurstöður úr hvoru tveggja á morgun. Hef verið dálítið kvíðin um helgina - verð nú bara að viðurkenna það. En eftir hádegi verður vonandi breitt bros á minni og þá er hægt að snúa sér að næsta áfanga sem er skurðaðgerð til að tengja ristil og snyrta magann á frúnni. Einhvern tímann lýkur þessu og þá verður hægt að tala um betri tíð með blóm í haga......... mn


65 ára

Þessar hringhendur urðu til af því tilefni að Ólafur Rúnar vinur minn er sextíu og fimm ára í dag.  Grin
Þína snilli þakka ber,
þegninn gyllir friðinn.
Löngum hylli ljúfan ver,
lipra milliliðinn.

Vinur blómast blessun er,
blíður, ljómar, glaður.
Óskir frómar færi þér,
fimi sómamaður.             EL


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband