22.3.2007 | 22:38
Tónleikar
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 22:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.3.2007 | 11:21
Safnaðu góðum dögum
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 11:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.3.2007 | 22:55
Langþráður - barmurinn breiði
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 23:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.3.2007 | 21:19
Hamingjuóskir
Atli Björn stóðst vörnina í masternáminu með mikilli prýði. Þetta er stór áfangi sem virkilega er hægt að gleðjast yfir og til hamingju með það elsku drengurinn. Þú er búinn að standa þig frábærlega vel eins og þín er von og vísan. Á myndinni sem ég fékk lánaða hjá þér mundar þú kjuðann einbeittur á svip. Myndin segir allt sem segja þarf, einbeitingin er þín sterka hlið, hún mun nýtast þér í starfi á komandi árum. Það verður gaman að fá þig heim.
Vinir og fjölskylda | Breytt 14.3.2007 kl. 21:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
13.3.2007 | 18:57
Lyfjabrunnur
Í maímánuði á síðasta ári var settur í mig lyfjabrunnur og staðsettur í bringunni - vinstramegin. Var hann notaður til að dæla lyfjum í vinstri bláæðina og mikill munur að sleppa við stungur og ,,legg" í handarbakið. En hlutverki hans lauk í nóvember og sjálfsagt að fjarlægja hann. Það er einfalt mál og tekur smá stund með staðdeyfingu en samt er hann enn í minni virðulegu bringu. Ástæða? Jú ástandið á LSH Landspítala-Háskólasjúkrahúsi er þannig að biðlistar eru óralangir. Menn þurfa að bíða í margar vikur eftir einfaldri skinnsprettuaðgerð. Og þegar kemur að stærri málum eins og skurðaðgerð er biðin enn lengri - ef sjúklingurinn er ekki i bráðri hættu er biðtíminn margir mánuðir. Tenging á mínum pípulögnum er komin í bið fram á haust. Svona er þetta nú. En skinnsprettuaðgerðin með tilheyrandi saumaskap verður framkvæmd núna á fimmtudaginn og get ég í framhaldi af því óhikað teygt mig og beygt að vild. Og lyft lóðum af meira öryggi. Skemmtileg frétt af Atla Birni á síðunni hans http://abel.blog.is
Maja
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 21:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.3.2007 | 17:28
Saumaklúbburinn
8.3.2007 | 20:45
Kraftar í kögglum
Síðan um áramót hef ég stundað líkamsrækt/þjálfun fjórum sinnum í viku. Tvisvar í viku yoga og tvisvar í Hreyfingu. Þegar ég byrjaði var líkamsástand mitt vægast sagt bágborið. Vöðvakrafturinn lítill, úthald, einbeiting, samhæfing hreyfinga og jafnvægi - allt var þetta nánast á núlli. Annar tíminn í Hreyfingu er tækjatími og var lóðunum hvorki lyft hátt né hratt til að byrja með. Eitt tækið hafði verið mér sérlega andsnúið, hafði gert ítrekaðar tilraunir til að sigra það en handleggirnir einfaldlega neituðu að hlýða - þar til í dag! Var það ólýsanleg tilfinning að finna kraftinn streyma og lyfta 9 kg. af lóðum! Og ekki bara einu sinni heldur 6 sinnum - hátt upp fyrir höfuð. Mikill áfangi og var mér klappað lof í lófa eins og um frækilegan sigur í fótbolta væri að ræða - gegn Dönum.
Íþróttatímarnir eru á vegum Ljóssins og eru Ljósberum að kostnaðarlausu. Yogatímarnir eru í Neskirkju þar sem aðsetur Ljóssins er og Arnhildur yogakennari og starfsmaður leiðir okkur um unaðssemdir yogafræðanna. Í Hreyfingu Faxafeni erum við með fasta tíma - í öðrum iðkum við gamaldags leikfimi og eins og áður sagði æfum í tækjasal í hinum tímanum. Þar heldur Guðrún sjúkraþjálfari utan um hópinn. Guðrún er ung sómakona úr Árbænum og kenndi ég henni á árum áður. Starfsmenn Ljóssins koma alltaf í tímana með okkur, Erna forstöðumaður eða Berlind iðjuþjálfi. Frábært framtak sem þegar er farið að skila góðum árangri.
Lífstíll | Breytt 11.3.2007 kl. 17:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.3.2007 | 09:59
Almyrkvi á tungli
1.3.2007 | 12:33
Seattle
Það styttist í það að Atli Björn komi heim frá Seattle. Eitthvað tekur það þó lengri tíma að ljúka Masternáminu í verkfræði, en hann bjóst við. Nú reiknar hann með að koma heim 24. mars, sem reyndar er alveg ágætur tími því þá er stutt í Páskaleyfið, sem er tilvalið slökunartímabil með spennandi augnablikum. EL
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 17:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.2.2007 | 15:04