1.1.2007 | 23:23
Um áramótin
Áramótin voru fremur friðsæl að mati lögreglunnar þó óvenjumörgum flugeldum væri skotið á loft. Veður var kyrrt á höfuðborgarsvæðinu og hávaðinn af flugeldunum var afar mikil um miðnættti og lagði reyk yfir svæðið. Fréttir herma að fá slys hafi orðið vegna flugeldanna en eldra fólk í sumum hverfum gat ekki sofið, einkum í Garðabær. Þá varð þessi hringhenda til:
Áramótin margir dá,menn því skjóta blysum.
Fáir njóta friðar þá,
flestir blóta slysum. EL
Ljóð | Breytt 3.1.2007 kl. 20:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.12.2006 | 21:54
Skötuveisla
Það er orðin venja að mæta í skötuveislu hjá Ólafi Rúnari og Kristínu Dúllu í Hafnarfirði á Þorláksmessu. Af því tilefni urðu til nokkrar hringhendur sem við félagarnir fluttum í lok borðhaldsins.
Á Þorláksmessu mætum kát,
magnast þessi hrina.
Skerðist stress við skötuát,
skynjum blessunina.
Eðalsteina ársins tel,
eyða hreinum trega.
Hjónin reynast voða vel,
virka greinilega. EL
Núna þegar nálgast jólin,
nefni ég þátt frelsarans,
eyðir trega eins og sólin
innri fegurð sérhvers manns.
Blessuð jólin, nálgast nú
niður sólin gengur,
upp í bólið ættir þú
ögn að dóla lengur. BÞ
Ljóð | Breytt s.d. kl. 23:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
18.12.2006 | 16:03
Góð jólagjöf
Í dag hitti ég lækninn minn - hana Agnesi og fórum við yfir niðurstöður úr blóðprufum og lungnamyndatöku frá því á föstudaginn, jafnframt spáðum við og spekúleruðum í ýmsu tengt sjúkdómsferlinu. Niðurstöðurnar voru flestar mjög góðar en enn er pirringur í lifrinni sem trúlega má rekja til krabbameinslyfjanna. Spurning hvort gömul kendirí séu að taka sig upp ... en grínlaust eru þetta bara góðar fréttir og bólgan sem var í lungum er horfin. Svo nú er mín kát og ætlar að fagna þessu með þvi að hitta barnabörnin. Og á morgun koma Snorri, Lydia og Andri Luke - bara tær snilld allt saman. mn
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 19:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
16.12.2006 | 19:59
Snemma beygist krókurinn
Ásdísi Heiðu þótti gaman að koma í heimsókn til afa og ömmu í dag. Sérstaka athygli hennar vakti gemsinn það notadrjúga tæki og hún var alveg tilbúin til að tala við afa sinn. Að vísu var þetta allt í plati en áhuginn var til staðar. Vangaveltur ABEL um gemsa eiga því fyllilega rétt á sér - það sannar meðfylgjandi mynd. Eða eins og málshátturinn segir, "Snemma beygist krókurinn (til þess) sem verða vill". EL
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 20:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.12.2006 | 21:28
Spakmæli
Þessa vísu lærði ég nýlega, en hún flokkast undir bragarhátt sem kallast úrkast og hljóðar svo:
Að segja biturt orð í eyra,
angri veldur.
Þögnin segir miklu meira,
en margur heldur. Höf: Ókunnur.
Vinir og fjölskylda | Breytt 13.12.2006 kl. 21:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
6.12.2006 | 18:19
Jólafastan
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 18:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.11.2006 | 23:06
Handverkssala Ljóssins
Sunnudaginn 3. desember verður Handverkssala Ljóssins í kaffihúsi Neskirkju við Hagatorg. Þar verða á boðstólum ýmsir munir til sölu sem Ljóssins fólk hefur gert, kaffi á könnunni og meðlæti í boði. Klukkan 13:30 koma góðir gestir og skemmta, Ellen og Eyþór syngja og dansarar sýna dans.
Í dag tók ég þátt í meiriháttar konfektgerð þar sem framleidd voru 1000 stk. af gómsætu konfekti og vorum við Rannveig á hrærivélunum. Er ég þó nokkuð stolt af mínum hlut - er ekki vön að standi í svona mikilli matvælaframleiðslu. Solla í Himneskri hollustu gaf allt efnið í þetta góðgæti sem verður að sjálfsögðu til sölu á handverkssölunni.
Allur ágóði rennur til styrktar Ljósinu, endurhæfingar- og stuningsmiðstöðvar fyrir krabbameinsgreinda og aðstandendur þeirra. Heimasíða http://ljosid.org
Hvet alla til að koma og styðja gott málefni.
Vinir og fjölskylda | Breytt 5.12.2006 kl. 17:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
25.11.2006 | 22:31
Dánumaður
Einhvern tímann í gamla daga hefði þessi dverghenda verið orð að sönnu. Hún varð hins vegar til þegar spurt var, hvað kemur næst? Dverghenda? Kannski var þetta bara létt spaug, en öllu gamni fylgir nokkur alvara.
Dverghenda
Ljóðum gef ég lítið rými
lagast brátt.
Bráðum kemur betri tími
byrja smátt. EL
Ljóð | Breytt 26.11.2006 kl. 19:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
23.11.2006 | 19:51
Veðurlýsing
Veðrið hefur verið afar rysjótt í nóvembermánuði þetta árið. Af því tilefni var þessi oddhenta til.
Ýmist blíða eða hríð,eyðir þíðan trega.
Reynist víða rysjótt tíð,
rýkur gríðarlega. el.
Ljóð | Breytt 24.11.2006 kl. 20:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
19.11.2006 | 20:12
Vísnavinir og milliliður
Í nokkur ár höfum við Björgúlfur á Hrafntóftum verið vísnavinir, en það felur í sér að yrkja vísur og senda hvor öðrum. Sá sem varpað hefur ljóma á samskiptin er Ólafur Rúnar vinur minn, bróðir Björgúlfs. Hann er svokallaður milliliður sem flytur allar vísur á milli okkar, án hans hefðu þessi skemmtilegu samskipti aldrei byrjað og engar vísur flogið á milli. Vísur okkar hafa ekki birst opinberlega en nú ætla ég að rjúfa þögnina og láta tvær nýlegar vísur fljóta inn á síðuna. Við félagarnir höfum spreytt okkur á ýmsum bragarháttum en þessar vísur eru tólfstiklur.
Tólfstikla Björgúlfs:
Þrefið hefur skammtað skref,skefur efinn nýjan vef?
Levy gefur gæða stef,
grefur nef í ljóðabréf. BÞ
Svarvísa:
Góður bróðir gerir óð,
glóðin rjóða markar slóð.
Hljóður, fróður fyllist móð,
fóður þjóðar, sendir ljóð. EL
Ljóð | Breytt 24.11.2006 kl. 21:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)