Miðvikudagur

Mikið er gaman að sjá hvað margir hafa skoðað síðuna okkar og þakka ég öllum fyrir góðar kveðjur og tek undir með Kristjönu að við Eggert eigum svo sannarlega fallegar fjölskyldur. Og saumaklúbbur væri vel þeginn Kata mín. mn


Góðir gestir

Afabörnin

Um helgina komu góðir gestir í heimsókn, afabörnin þrjú ásamt foreldrum sínum og bakaði afinn gulrótarköku í tilefni dagsins. Munið að tvísmella á myndirnar og síðan aftur að smella; þá koma stórar og góðar myndir.


Fleiri myndir

Lyfjagjöf lokið

Aldeilis kát kona sem skokkaði út af LSH í morgun. Lyfin eru talin gera meira ógagn er gagn þegar hér er komið sögu og dæludagar að baki. Fór í eina röntgenmyndatöku og síðan útskrifuð að sinni. Erum við heldur betur kát í Austurbrúninni núna. Segi ykkur nánar frá því síðar, núna ætla ég í bæinn og fá mér góða máltíð í tilefni dagsins. mn

Minni á netfang Ljósins http://www.ljosid.org


Fimm fræknar

Brosmildar

Meðan Edda var í heimsókn á landi ísa var þessi skemmtilega mynd tekin.  Á henni má sjá Margréti Maríu ásamt móður sinni Oddnýju, ömmu Maju, Eddu ömmusystur og Ásu langafasystur að ógleymdri dúkkunni Binnu Rósu.  Árið 1977 fékk Oddný dúkkuna í afmælisgjöf frá Binna heitinum og er hún því 29 ára gömul.  Margrét María og Binna eru miklar vinkonur.


Deild 11B

Maja í lyfjagjöf

Þá er 11. gjafavikan orðin að veruleika og styttist því óðum þrautaganga Maju, hvað lyfin varðar.  Edda systir hennar mætti í starfskynningu á LSH og getur því yfirgefið Klakann með sælubros á vör.  Það var afar ánægjulegt að hún skyldi geta komið og verið hér í nokkra daga.

Tvísmelltu á myndina!


Frúin í Horsens

í Litla HoltiEdda kom í heimsókn til landsins og hefur farið víða.  Stutt heimsókn í Litla Holt var hluti af leiknum.  Þar er allt í ryki en komið að því að hreinsa út og fara mála slotið.


Gamlar vinkonur

Í kvöld ætla nokkrar vinkonur að hittast eftir langt hlé.  Fyrir margt löngu stunduðum við nám saman á Alþýðuskólanum á Eiðum og lögðum saman af stað út í lífið.  Á Eiðum var nú ýmislegt brallað og hefur margt drifið á daga okkar síðan þá.  Verður aldeilis gaman að rifja upp gamlar stundir og eflaust mikið hlegið.   mn


Ljósið

Mig langar til að segja ykkur frá Ljósinu sem er endurhæfingastöð fyrir krabbameinsgreinda og aðstandendur þeirra. Netfangið er ljosid.org og þar er ýmsan fróðleik að finna. Margvísleg starfsemi er í Ljósinu, boðið upp á handverk af ýmsu tagi, útivist, námskeið og fræðsluerindi um allt milli himins og jarðar. Ég bæti við frekari fróðleik síðar en þessi starfsemi er mjög merkilega og ástæða til að vekja athygli á henni. Endurhæfing er mikils virði þegar fólk stendur í stórræðum sem óneitanlega fylgja sjúkdómum. Ég er nú reyndar svo heppin að geta stungið mér í vinnuna mína í Kennarahúsinu og er það ótrúlega mikil endurnæring og mikill hlýhugur sem ég finn frá mínu góða samstarfsfólki. 

Góða veðrið hefur aldeilis lífgað upp á tilveruna hjá okkur hér í höfuðborginni og hvatt til göngutúra og skoðanaferða um svæðið. Mannlífið verður allt öðruvísi þegar vel viðrar, t.d. spjöllum við Þórarinn nágranni minn meira saman núna en oft áður. Þórarinn er ótrúlegur maður - kominn á níræðis aldur og fer út á hverjum degi og dittar að sínu, húsi og garði og heldur öllu í horfinu. Og alltaf í góðu skapi. mn 

 


Hvítu blóðkornin

Þegar ég mætti á LSH í morgun til að þiggja minn venjulega lyfjaskammt kom í ljós að  hluti af hvítu blóðkornunum hafði fækkað svo mikið að ekki var talið ráðleggt að hefja lyfjagjöf að svo stöddu. Þess vegna er ekki gjafavika núna heldur ,,auka sæluvika". Er þetta í fyrsta skipti sem fresta þarf lyfjagjöf hjá mér.  Fékk ég þau fyrirmæli frá lækninum að borða vel og mikið af hollum mat og stunda útivist. Með það að leiðarljósi fór ég út í daginn og skellti mér í langan göngutúr með Hjördís minni og Nóa Kárasyni og kynntu þau fyrir mér nýju heimkynni sín við Elliðavatn. En þar er fallegt og friðsælt eins og allir vita og ótrúlega góð orka þar um slóðir. Hvað varðar holla matinn þá er ég undir miklum áhrifum frá Sollu í himneskri hollust þessa dagana og gæti vel að því sem ég læt ofan í mig.  mn


Ferðasagan

Valgeir Már sendi nýlega ferðasögu félaganna um 7 Evrópulönd og hafði frá ýmsu skemmtilegu að segja.  Þá datt mér eftirfarandi í hug.      el
Ferskeytla
Ferðasagan fjarska góð
forðast jag og kvíða.
Sumar fagurt fyllir móð
fínir dagar líða.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband