Síungir kennarar

A-bekkurinn 35 ára
Nú eru 35 ár síðan þessi fríði hópur lauk kennaraprófi.  Að sjálfsögðu var haldið upp á afmælið með viðeigandi hætti; útivist, partý og veisla í Glersalnum.

....kátt í höllinni

c_documents_and_settings_administrator_my_documents_my_pictures_skirn_12_agust_2006_skirn_12_agust_2006_073.jpg

Í dag var kátt i höllinni þegar gengið var frá túnþökum í Litla Holti. Fagraþingið mætti allt eins og það leggur sig og með slæddist Oddný Svanhildardóttir og Garðar Gunnlaugsson tók góða rispu. Julefrokosten verður í den lille í ár. Kartöflur teknar upp og góð uppskera.

Sæluvika runnin upp og meiningin að vinna nokkur handtök; gjafavikan gekk vel. Rigning og rok hér um slóðir en sól og blíða hjá vinum og vandamönnum ytra og njóta þeir vonandi vel. Heyrist reyndar að menn séu rétt að ná sér eftir Rolling Stones í Horsens.  mn


Maju börnin

Tindur  Nafnið Tindur kemur fyrst fyrir á landnámsöld samanber Tindur á Tindsstöðum, ábyggilega frægur kappi, einnig er Tindur Hallkelsson nefndur í Íslendinga sögum, ekki fara sögur af því að þeir kappar hafi iðkað fótbólta eins og Tindur Kárason nafni þeirra gerir.  Nafnið fær auknar vinsældir eftir miðja síðustu öld og í dag er þó nokkrir sem heita þessu nafni.  Orðið Tindur merkir sá sem stendur upp úr.

Nói  Nafnið Nói kemur fyrst fyrir hér á landi á 19. öld og hefur nafnið notið vaxandi vinsælda.  Það finnst í báðum ættum Maju ömmu hans.  Nafnið er sótt til Biblíunnar og er af hebreskum toga.  Sumir telja það merkja hvíld, aðrir ætla að það merki langlífi.  Í Gamla testamentinu segir frá Nóa og örkinni, sem hann og synir hans smíðuðu að boði Guðs til að bjarga sér og dýrum jarðarinnar úr syndaflóðinu.  Nói og Tindur eru synir Kára og Hjördísar.

Andri Luke  Nafnið Andri er ungt nafn í íslensku kemur fyrir í byrjun 20. aldar og merkir eiginlega skíðamaður.  Orðið andri er eingöngu norrænt og á sér engar beinar samsvaranir í germönskum málum.  Nú á dögum er nafnið eitt af tískunöfnunum á Íslandi.  Nafnið Luke er stytting úr Lucas og er vinsælt á erlendri grundu.  Í nöfnunum blandast saman; andar, skíði, bardagamenn, biblíupersónur, teiknimyndahetjur og vísindaskáldsagnapersónur.  Andri Luke er sonur Snorra og Lydiu sem búsett eru í NY.

Kári Daníel  Nafnið Kári er þekkt allt frá Landnámsöld og sá kappi sem þekktastur var á þeim tíma hét Kári Sólmundarson, fóstbróðir Njálssona. Nafnið er vinsælt hérlendis og merkir hrokkinhærður maður.  Nafnið Daníel er þekkt á Norðurlöndum allt frá 12. öld, það er Bíblíunafn komið úr hebrsku og vinsælt víða um heim.  Kári Daníel er sennilega eini Íslendingurinn sem ber þessa tvennu.  Hann er sonur Oddnýjar og stjúpsonur Hallgríms.

Margrét María  Bæði þessi nöfn hafða verið algeng hérlendis í aldaraðir.  Margrét er upprunalega grískt nafn og merkir perla.  Það er meðal algengustu kvenmannsnafna í evrópskum konungaættum.  María er tökuheiti úr latínu komið úr grísku, merking þess er óljós, en sú þekktasta er að sjálfsögðu María guðsmóðir.  Bæði nöfnin eru heiti helgra meyja og dýrlinganöfn.  Margrét María heitir eftir ömmum sínum og er dóttir Oddnýjar og Hallgríms.


Sæluvika

Fallegur dagur í höfuðborginni; sól og hlýtt. Skólastarf að rúlla af stað og kennari heimilisins að ná tökum á vetrarstarfinu. Sæluvikan framundan með öllum sínum fyrirheitum ...........

Er nú bara alveg andlaus í dag, skrifa kannski meira síðar en minni menn á að skoða heimasíðuna sem Eggert bendir á hér að neðan. mn


Á tímamótum

Kynntu þér skemmtilega tímamóta frétt, smelltu á slóðina http://www.skola.is/skolavorubudin/frettasafn/?cat_id=7021&ew_0_a_id=227053


Sigurvegari

Sigurvegari í skoðanakönnuninni um lögin sem voru sungin við skírnaathöfnina er Atli Björn Eggertsson Levy.   Hann sigraði glæsilega og er hægt að sjá niðurstöðurnar í athugasemdum við texta hér fyrir neðan.  Kynnið ykkur endilega málið. Verðlaunaafhending fer fram síðar; nánar til tekið þegar sigurvegrinn kemur til landsins en hann er í Ameríku við nám eins og allir vita en sumir kannski búnir að gleyma því hann les svo stíft að lítið heyrist frá honum. Eru samskiptin við hann að verða eins og samskipti Fjölnismanna voru við landann á öldum áður en þeir voru nú reyndar háðir skipaferðum milli landa sem voru örfáar á ári. Treysti því að Atli stundi nám af kappi og láti ekki trufla sig. Verðlaunin bíða.

Í dag er rigning og rok í höfuðborginni. Oddný og Kári Daníel voru bílstjórar hjá mér í dag og dvöldu hér fram eftir degi. Fékk KD sína límmiða fyrir vel unnin störf á salerninu.

Lyfin streyma um æðar mér og lítið um það að segja en ekki eru þau nú nein heilsubótarefni, veikja og/eða drepa nýjar frumur í líkamanum og gera mann slappan og stundum niðurdregin en svona er lífið og lítið annað að gera en að standa vaktina á enda eins og sönn sjómannsdóttir. En stundum gefur hraustlega á bátinn.

Ætla að hlusta á Magna í nótt.


Gjafavika og söknuður

Nú er litla fjölskyldan frá Brooklyn farin heim og ríkir mikill söknuður hjá okkur. Vikan sem þau dvöldu hér leið hratt og var tíminn nýttur til hins ítrasta. Andri litli Luke heillaði alla með brosi sínu og stórkostlegt að sjá frændsystkinin saman í fyrsta sinn og sérstaklega þá frændur Nóa og hann sem eru jafnaldrar. Miklir snillingar þar á ferð.

Eftir 4 sæluvikur er nú að hefjast gjafavika númer 7 og  seinni hálfleikur að renna upp í þessari baráttu. Hléið frá lyfjasullinu var kærkomið en nú er bara að slá í og ljúka þessu. Var ég hress í síðustu viku og fyrir utan að knúsa Andra og félaga vann ég þó nokkuð í Kennarahúsinu og var haldinn stjórnarfundur og alles. 

Á Lansanum er lífið að falla í fastar skorður og menn og konur að koma til starfa eftir sumarfrí. Á deild 11 B er friður og ró eins og endranær enda valinn maður í hverju rúmi. Hjúkrunarfræðingurinn minn í dag heitir Kristín -  henni fórst vel úr hendi að stinga nálinni í ,,brunninn" og núna streyma hinir ýmsu vökvar um líkama minn og dreifast eftir æðakerfinu og gera vonandi það gagn sem til er ætlast.      mn


Valgeir gerist víðförull

Valgeir Már er floginn út í heim ásamt félögum sínum frá Bifröst. Þeir flugu til Þýskalands, fara síðan til Póllands, Tékklands, Slóveníu, Ungverjalands, Króatíu og Ítalíu.  Á Ítalíu hyggst Valgeir dvelja fram til jóla og stunda nám við Universita Carlo Cattaneo sem er staðsettur í Castellanza skammt norðan við Milanó.

Leyfið börnunum að koma til mín

c_documents_and_settings_administrator_my_documents_my_pictures_skirn_12_agust_2006_skirn_12_agust_2006_044_45463.jpg

Systkinabarnaskírn í Fríkirkjunni;  Snorri, Kári og Oddný létu ausa börn sín vígðu vatni í dag.  Þau bera nöfnin Andri Luke, Nói og Margrét María.  Maggý söng við meðleik Oddnýjar 3 lög sem tileinkuð voru hverju barni fyrir sig.  Lögin eru Maríuvers, Fylgd (elsku litli ljúfur) og Wonderful world. Gaman væri að fá skoðanir manna á því hvert barn á hvaða lag.


Fleiri myndir

Fróðleikur um mannanöfn

Eggert Aron  Nafnið Eggert er upprunalega þýskt nafn, sem mun hafa borist hingað frá Noregi liklega á 15. öld.  Það hefur verið þónokkuð notað í Húnavatnssýslu og þegar ég var að alast upp voru fimm sem báru nafnið í minni gömlu fæðingarsveit. Nafnið Aron er hins vegar hebreskt nafn að uppruna og merking þess óviss. Það mun hafa verið tekið upp hér á landi á 12. öld og hefur tíðkast síðan. Nafnið er afar vinsælt í dag, en sjaldgæft að þessi tvö nöfn séu sett saman. 

Jóhanna Rakel  Nafnið Jóhanna er upprunalega hebreskt nafn, sem mun hafa borist hingað frá Danmörku líklega á 17. öld. Árið 1910 var Jóhanna áttunda algengasta kvenmannsnafn á landinu. Nafnið Rakel er hebreskt að uppruna, Bíbliunafn. Kemur fyrst fyrir hér á landi á 13. öld og er afar vinsælt hin síðar ár.  Jóhanna Rakel og Eggert Aron eru börn Jóhannesar og Hörpu.

Ásdís Heiða  Nafnið Ásdís er íslenskt, dís helguð ásum og hefur tíðkast allt frá landnámsöld. Ingunn Hallgrímsdóttir fyrrum húsfreyja á Hofi í Vatnsdal, langa langaamma Ásdísar Heiðu, hafði mikið dálæti á Ásdísi á Bjargi í Miðfirði móður Grettis sterka, þaðan er nafnið fengið.  Nafnið Heiða er stytting úr lengra nafni í þessu tilviki úr nafninu Aðalheiður. Ásdís Heiða er því skírð eftir ömmum sínum. Til gamans má geta þess að Ásdís Heiða er eini Íslendingurinn sem ber þetta nafn.  Ásdís Heiða er dóttir Sigurðar og Berglindar.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband