5.2.2007 | 21:13
Kapparnir frá Reykjaskóla
Fyrir hart nær 40 árum útskrifuðust þessir kappar frá Reykjaskóla í Hrútafirði, ásamt bekkjarfélögum sínum. Þeir voru í körfuboltaliði skólans, en körfubolti var þá þegar orðin vinsæl íþróttgrein. Í þá daga þótti við hæfi að eignast skólapeysur með merki skólans eins og glöggt má sjá á myndinni. Þetta þótti auka samheldni og samhug meðal bekkjarfélaganna. Þessi mynd hefur hvergi birst áður, hreinlega legið í dvala. En félagarnir Svanur, Hjálmur, Jón og Eggert eru enn í fullu fjöri en eitthvað hefur útlitið væntanlega breyst. En hvað um það, þá ætla bekkjarfélagarnir fjörtíu að minnast fjörtíu ára afmælisins í vor. Sú venja hefur skapast að hópurinn hefur hist á fimm ára fresti frá útskrift og alltaf hefur verið jafn gaman. Þegar maður lítur yfir farinn veg, þá er þetta í raun alveg ótrúlegt. Í minningunni var dvölin á Reykjaskóla skemmtileg, árin þrjú voru fljót að líða, enda höfðu menn ýmislegt fyrir stafni. Þegar nám og leikur fer saman þá flýgur tíminn hratt. EL
Athugasemdir
Glæsileg mynd. Ertu að grínast með þessa hramma? Brjálað sniðugt hvað hlutföllin eru eitthvað skemmd :)
Þú hefur væntanlega verið hrútfirskur sjómannsmeistari í krumlu, eller hvad?
abelinn, 6.2.2007 kl. 01:04
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.