Færsluflokkur: Ljóð

65 ára

Þessar hringhendur urðu til af því tilefni að Ólafur Rúnar vinur minn er sextíu og fimm ára í dag.  Grin
Þína snilli þakka ber,
þegninn gyllir friðinn.
Löngum hylli ljúfan ver,
lipra milliliðinn.

Vinur blómast blessun er,
blíður, ljómar, glaður.
Óskir frómar færi þér,
fimi sómamaður.             EL


Um áramótin

Áramótin voru fremur friðsæl að mati lögreglunnar þó óvenjumörgum flugeldum væri skotið á loft.  Veður var kyrrt á höfuðborgarsvæðinu og hávaðinn af flugeldunum var afar mikil um miðnættti og lagði reyk yfir svæðið.  Fréttir herma að fá slys hafi orðið vegna flugeldanna en eldra fólk í sumum hverfum gat ekki sofið, einkum í Garðabær.  Þá varð þessi hringhenda til:

Áramótin margir dá,
menn því skjóta blysum.
Fáir njóta friðar þá,
flestir blóta slysum.      EL

Skötuveisla

Við veisluborðið

Það er orðin venja að mæta í skötuveislu hjá Ólafi Rúnari og Kristínu Dúllu í Hafnarfirði á Þorláksmessu.  Af því tilefni urðu til nokkrar hringhendur sem við félagarnir fluttum í lok borðhaldsins.

Á Þorláksmessu mætum kát,
magnast þessi hrina.
Skerðist stress við skötuát,
skynjum blessunina.

Eðalsteina ársins tel,
eyða hreinum trega.
Hjónin reynast voða vel,
virka greinilega.        EL


Núna þegar nálgast jólin,
nefni ég þátt frelsarans,
eyðir trega eins og sólin
innri fegurð sérhvers manns.


Blessuð jólin, nálgast nú
niður sólin gengur,
upp í bólið ættir þú
ögn að dóla lengur.    


Dánumaður

Einhvern tímann í gamla daga hefði þessi dverghenda verið orð að sönnu.  Hún varð hins vegar til þegar spurt var, hvað kemur næst? Dverghenda?  Kannski var þetta bara létt spaug, en öllu gamni fylgir nokkur alvara.
Dverghenda
Ljóðum gef ég lítið rými
lagast brátt.
Bráðum kemur betri tími
byrja smátt.             EL


Veðurlýsing

Veðrið hefur verið afar rysjótt í nóvembermánuði þetta árið.  Af því tilefni var þessi oddhenta til.

Ýmist blíða eða hríð,
eyðir þíðan trega.
Reynist víða rysjótt tíð,
rýkur gríðarlega.             el.

Vísnavinir og milliliður

Í nokkur ár höfum við Björgúlfur á Hrafntóftum verið vísnavinir, en það felur í sér að yrkja vísur og senda hvor öðrum.  Sá sem varpað hefur ljóma á samskiptin er Ólafur Rúnar vinur minn, bróðir Björgúlfs.  Hann er svokallaður milliliður sem flytur allar vísur á milli okkar, án hans hefðu þessi skemmtilegu samskipti aldrei byrjað og engar vísur flogið á milli.  Vísur okkar hafa ekki birst opinberlega en nú ætla ég að rjúfa þögnina og láta tvær nýlegar vísur fljóta inn á síðuna.  Við félagarnir höfum spreytt okkur á ýmsum bragarháttum en þessar vísur eru tólfstiklur.

Tólfstikla Björgúlfs:

Þrefið hefur skammtað skref,
skefur efinn nýjan vef?
Levy gefur gæða stef,
grefur nef í ljóðabréf.          BÞ

Svarvísa:
Góður bróðir gerir óð,
glóðin rjóða markar slóð.
Hljóður, fróður fyllist móð,
fóður þjóðar, sendir ljóð.     EL 


Ferðasagan

Valgeir Már sendi nýlega ferðasögu félaganna um 7 Evrópulönd og hafði frá ýmsu skemmtilegu að segja.  Þá datt mér eftirfarandi í hug.      el
Ferskeytla
Ferðasagan fjarska góð
forðast jag og kvíða.
Sumar fagurt fyllir móð
fínir dagar líða.


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband