Færsluflokkur: Ljóð

Á Gamlárskvöld

Gleðin skín á Gamlárskvöld
grannar borða saman.
Áramótin mjúk og köld
mikið er þó gaman.         EL


Kveðskapur á Tenerife

Hér er mikil sólarsýn
sjaldan liðið betur.
Drekk á hverju kvöldi vín
hverfur þessi vetur.          EL


Hvítserkur

Heillar strönd við Húnafjörð
hefur margt að bjóða,
kynnum fagran klettadrang
Hvítserk meðal þjóða.

Aldan sverfur basískt berg
brimið á því skellur,
oft þó komi erfið tíð
aldrei steinninn fellur.

Kalda lít ég klettabrík
krýnda fugladriti.
Heimaslóðin Húnaþing
heldur sínu gliti.                EL


Hinn eilífi svefn

Þegar sef ég út í eitt
ekki stefin kvikna.
Þá lífið hefur litlu breytt
ef ljóðabréfin stikna.
 

Oft um nætur yrkja vil
andinn mætir glaður.
Orku bætir af og til
afar gætinn maður.         EL
  


Vísnavinir

Að eiga vísnavin er skemmtileg dægradvöl.  Eftirfarandi fimmlínu hringhendu sendi ég mínum vísnavini, Björgúlfi Þorvarðarsyni á Hrafntóftum, ekki alls fyrir löngu.

                                                                                                             Vísnavinir

 Færni þína þekkja má
 þroskinn skín með sanni.
 Ljóðin sýna líka þrá

 lofið dvínar ekki, hjá

 feikna fínum manni.            EL


Spánarspark

Nýlega skoraði Eiður mark fyrir Barcelona, þá kviknaði þessi fimmlínu hringhenda:
Eiður tekur Spánarspark
spretti frekar netta.
Brosið vekur, bætir kjark,
boltinn lekur þá í mark,
sumir sekir detta.            EL 


Til umhugsunar

Göfug ljóðin gerast þín,
geðug fljóðin metur.
Öðlast góða yfirsýn,
okkur hljóða setur.           EL


Ljóð

Þú ert minn dagur,
þú ert mín nótt,
þinn heilagi kross
á bringu þér.
Heldur okkur
okkur saman í huga og hér.

Höfundur GEL


Yngismærin

Á fermingardaginn hennar Guðrúnar Ernu setti ég eftirfarandi vísu í kortið til hennar.

Yngismærin afar fín
orðin prúð og lagin.
Gæfan ávallt, Guðrún mín,
gangi þér í haginn.


Flokkarölt

Í fréttum sjónvarpsins 27. nóv. 2006  var sagt frá því að Kristinn H Gunnarsson alþingismaður sem hafnaði í þriðja sæti í prófkjöri Framsóknarmanna í NV-kjördæmi sé ekki mjög ánægður þessa dagana. Talið er að hann muni jafnvel ekki taka sætið, fara fremur í sérframboð eða í Frjálslynda flokkinn. Sama kvöld varð þessi vísa til, en birtist fyrst núna. Kristinn hefur nú ákveðið að ganga til liðs við Frjálslynda flokkinn og það verður þriðji flokkurinn sem hann styðurá sjö árum - Kristinn er því allt jafn hress og ferskur.  EL


Kristinn milli flokka fer,
fæti tyllir niður.
Ofursnilli eflaust ber,
enn um hylli biður.

Fleiri vísur komu af þessu brölti eða rölti alþingismannsins.

Í Kristni blundar göfugt gen,
gengur funda milli.
Frelsislundin fyllir senn,
frjálsa stundarhylli.    


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband