27.11.2006 | 23:06
Handverkssala Ljóssins
Sunnudaginn 3. desember verður Handverkssala Ljóssins í kaffihúsi Neskirkju við Hagatorg. Þar verða á boðstólum ýmsir munir til sölu sem Ljóssins fólk hefur gert, kaffi á könnunni og meðlæti í boði. Klukkan 13:30 koma góðir gestir og skemmta, Ellen og Eyþór syngja og dansarar sýna dans.
Í dag tók ég þátt í meiriháttar konfektgerð þar sem framleidd voru 1000 stk. af gómsætu konfekti og vorum við Rannveig á hrærivélunum. Er ég þó nokkuð stolt af mínum hlut - er ekki vön að standi í svona mikilli matvælaframleiðslu. Solla í Himneskri hollustu gaf allt efnið í þetta góðgæti sem verður að sjálfsögðu til sölu á handverkssölunni.
Allur ágóði rennur til styrktar Ljósinu, endurhæfingar- og stuningsmiðstöðvar fyrir krabbameinsgreinda og aðstandendur þeirra. Heimasíða http://ljosid.org
Hvet alla til að koma og styðja gott málefni.
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Breytt 5.12.2006 kl. 17:34 | Facebook
Athugasemdir
Haha.. get ímyndað mér hversu miklum framförum framlengingarsnúrur hafi valdið á sínum tíma! Það verður að sjálfsögðu blátt bann við svoleiðis í mínum húsum.
Svo er reyndar spurning hvort þeir finni upp þráðlausa tækni í rafmagni en ég tel nú að það sé reyndar ólíklegt í náinni framtíð. Þó verð ég að segja að þessi frétt frá 15. nóvember sló mig aðeins: http://mbl.is/mm/frettir/togt/frett.html?nid=1235126
abelinn, 28.11.2006 kl. 04:52
Jæja... er verið að vísa til ákveðinnar dóttur ákveðinnar Maríu????? Ég tek þetta mjög til mín enda símakær með eindæmum og sé ekki eftir peningunum sem renna til símafyrirtækja. En trixið með veggsímann og stuttu snúruna virkaði vel, og gerði það að verkum að börn Maríu hleyptu heimdraganum fyrr en margir jafnaldrar þeirra... Kveðja, Oddný
Oddný Sturludóttir (IP-tala skráð) 30.11.2006 kl. 18:02
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.