19.11.2006 | 20:12
Vísnavinir og milliliður
Í nokkur ár höfum við Björgúlfur á Hrafntóftum verið vísnavinir, en það felur í sér að yrkja vísur og senda hvor öðrum. Sá sem varpað hefur ljóma á samskiptin er Ólafur Rúnar vinur minn, bróðir Björgúlfs. Hann er svokallaður milliliður sem flytur allar vísur á milli okkar, án hans hefðu þessi skemmtilegu samskipti aldrei byrjað og engar vísur flogið á milli. Vísur okkar hafa ekki birst opinberlega en nú ætla ég að rjúfa þögnina og láta tvær nýlegar vísur fljóta inn á síðuna. Við félagarnir höfum spreytt okkur á ýmsum bragarháttum en þessar vísur eru tólfstiklur.
Tólfstikla Björgúlfs:
Þrefið hefur skammtað skref,skefur efinn nýjan vef?
Levy gefur gæða stef,
grefur nef í ljóðabréf. BÞ
Svarvísa:
Góður bróðir gerir óð,
glóðin rjóða markar slóð.
Hljóður, fróður fyllist móð,
fóður þjóðar, sendir ljóð. EL
Athugasemdir
..svakalega eru menn orðnir eitthvað djúpir
Læt þig vita þegar maður skilur þessi fínu kvæði!
abelinn, 20.11.2006 kl. 08:06
Aldeilis góður kveðskapur hér á ferð - vonandi fljóta fleiri góðar inn á síðuna. Kveðja, Maja
Eggert J Levy og María Norðdahl, 20.11.2006 kl. 22:27
Sérlega gott Eggert. Birgir Már Norðdah, Snerlevej 26, 2.59 DK-3000 Helsingør, Danmark
Birgir Már Norðdahl (IP-tala skráð) 22.11.2006 kl. 03:42
Sérlega gott Eggert. Birgir Már Norðdah, Snerlevej 26, 2.59 DK-3000 Helsingør, Danmark
Birgir Már Norðdahl (IP-tala skráð) 22.11.2006 kl. 03:45
Sérlega gott Eggert. Birgir Már Norðdahl, Snerlevej 26, 2.59 DK-3000 Helsingør, Danmark
Birgir Már Norðdahl (IP-tala skráð) 22.11.2006 kl. 03:46
Ja mér þykir þessi kveðskapur vera vægast sagt forvitnilegur og vænti ég þess að fá að sjá meira slíkum stiklum!
Kv. Valgeir Már
Valgeir Már Eggertsson Levy (IP-tala skráð) 23.11.2006 kl. 00:02
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.